Sagan
Annar af tveimur veislusölum Balthazars á efri hæð hússins gengur undir nafninu Kaaber herbergið af virðingaskyni við Johnson og Kaaber sem lengi ráku starfsemi í húsinu á fyrri hluta síðustu aldar.Hinn salurinn á efri hæðinni er jafnframt útbúnn fullkomnum búnaði til hvers kyns fundarhalda og gleðskapar. Árum saman hefur nú verið rekinn veitingastaður í þessu fornfræga glæsilega húsi.
Nú um áramótin opnaði Balthazar bar grill veitingastaður í húsinu, hugmyndafræðin er að bjóða upp á lifandi veitingahús þar sem hægt er að njóta matar af hæstu gæðum á viðráðanlegu verði fyrir alla fjölskylduna við bjóðum jafnframt upp á veislusali, útsendingar frá íþróttaviðburðum, lifandi tónlist á fimmtudögum og skemmtilega klúbbstemningu eftir að eldhúsið lokar um helgar. Þegar vel viðrar njóta gestir okkar gjarnan veitinga við útiborð á stéttinni framan við Balthazar en Hafnarstrætið framan við staðinn er ein af vistvænum götum Reykjavíkur þar sem mannlíf gengur fyrir umferð.
Í eldhúsinu ræður ríkjum Ragnar Ómarsson mest verðlaunaðasti matreiðslumeistari Íslendinga fyrr og síðar, Ragnar var fenginn til þess að leggja hönd á matseðilinn, hráefnið og eldamennskuna og er óhætt að segja að handbrögð hans séu töfrum líkust en bragð er besta ráðið og því um að gera að prófa einhvern af réttum eldhússins í Balthazar. Við bjóðum upp á rétt dagsins á frábæru verði alla daga auk þess sem hægt er að panta af matseðli yndislega samsetta rétti sem leika við bragðkyrtlana og eru á verði frá rétt rúmum þúsund krónum og upp í rúmar þrjú þúsund krónur þeir dýrustu sem eru þá steikur framreiddar úr besta fáanlega hráefni.
Á Balthazar er mikil áhersla lögð á góða þjónustu og gott viðmót þeirra sem þar starfa. Við þjónum til borðs alltaf allan daginn, erum ekki stíf en vitum hvað þarf til að þú þurfir ekki að bíða lengi og fáir það sem um er beðið. Úrval vína og drykkja er gott hjá okkur, Óskar yfirþjónn útbýr nánast hvaða kokteil sem er án fyrirhafnar og vín með matnum eru á viðráðanlegu verði.
Við bjóðum alla fjölskylduna velkomna til okkar, allir geta fengið eitthvað við sitt hæfi, börnin geta notið þess að horfa á teiknimynd eða leika sér í barnahorninu á meðan foreldrarnir njóta góðra veitinga.
Við sýnum frá knattspyrnu og öðrum spennandi íþróttaviðburðum þegar svo ber við. Á Balthazar eru stórir skjáir og sýningartjöld með bestu fáanlegum gæðum bæði í hljóði og mynd. Á virkum dögum er lífleg og skemmtileg stemning á Balthazar þar sem saman fer róleg og notaleg skemmtun, góður matur og þægileg þjónusta.
Einkunnarorð okkar eru: Aðeins það besta á Balthazar!
