Uppskriftir
Fylltar kjúklingabringur „Gordon blu“ með Grísku kartöflusalati og balsamic-vinagrettu
Fyrir 4manns:
4 kjúklingabringur, 4 skinku sneiðar, 3 msk fetaostur, 8-12 sneiðar beikon (fer eftir stærð)
Aðferð:
Skerið kjúklingabringurnar þannig að þær verða flatar og vel opnar, setjið eina sneið af skinku á hverja bringu og skiptið síðan feta ostinum í fernt og setjið ofaná skinkuna, þá er bringunni rúllað upp þannig að skinkan er utanum ostinn og kjúklingurinn utanum skinkuna og síðan er beikoninu vafið utanum kjúklinginn, svo er notuð grillspjót eða tannstönglar til að loka öllu vel saman. Hitið pönnu vel upp og steikið rúlluna á öllum hliðum í ca 1 ½ mínútu á hverri, stjið inní 180gráðu heitan ofn í ca.10 mín. (ekkert salt vegna þess að beikon,skinkan og osturinn er með salt)
Grískt kartöflusalat:
500 g kartöflur (soðnar og skornar í bita), 70 g svartar ólívur (skornar), 70 g sólþurrkaðir tómatar, 4 stk vorlaukur saxaður (eða sama magn af öðrum góðum lauk t.d rauðlauk), 2 msk fetaostur, 1 msk ferskt oregano saxað (hægt að nota þurrkað, enn þá bara ½ tsk.)
Aðferð:
Hitið vel uppá pönnu og steikið fyrst kartöflurnar í smá olíu og bætið síðan lauknum, ólívunum og tómötunum útá og steikið áfram í ca 2 mín og smakkið til með salti og pipar. Setjið ostinn útí salatið rétt áður enn borið er fram.
Balsamic vinegretta:
1 hluti balsamic edik, 2 hluti olía(50/50 ólívuolía og olían af fetaostinum), Salt og pipar, Edikið og olían hrist saman og smakkað til með salti og nýmuldum pipar.
Rósmarínkryddaður lax með grænmetis-couscous og jógúrtsósu
Fyrir 4: 800 g lax (roð og beinlaus), 2 rósmarínkvistar, 4 sítrónusneiðar
Olía og smjör til steikingar
Aðferð: Skerið laxinn í 4 steikur, hitið vel uppá pönnu steikið laxinn í olíunni og smjörinu í ca 3 mín á hvorri hlið, þegar búið er að snúa laxinum er rósmarínkvistinum og sítrónusneiðunum bætt á pönnuna , saltað og piprað á hvorri hlið.
Grænmetis-couscous: 2 bollar couscous, 3 bollar vatn, 1 tsk grænmetiskraftur eða kjúklingakraftur 1 paprika, 1 stk tómatur, 4 stk vorlaukur (eða svipað magn af einhverjum öðrum lauk)
5-6 stk sólþurrkaðir tómatar, 1 msk dijonsinnep, 3 msk olían af sólþurrkuðu tómötunum Salt og pipar
Aðferð: Setjið couscousið í stóra skál, sjóðið uppá vatninu og kraftinum, saxið allt grænmetið frekar fínt og blandið við couscous-ið og hellið soðinu yfir couscous-ið og hrærið létt í, plastið vel yfir og látið standa í 10-15 mín. Þá er dijonsinnepinu og olíunni bætt við og smakkað til með salti og pipar, borið fram heitt eða kalt.
Jógúrtsósan: 8 msk grískur jógúrt (hægt að nota skyr), 1 msk dijonsinnep, 1 tsk cumminduft Safi úr ½ sítrónu, 1 geiri ferskur hvítlaukur fínt saxaður (má sleppa), Salt og pipar
Aðferð: Allt blandað vel saman og látið helst standa í kæli í klukkutíma fyrir notkun.
***
Nautalund að hætti Balthazar með Bernaise sósu, grænmeti og bökuðum kartöflum.
Nautalundin snyrt, sinar fjarlægðar og búnar til 200gr. steikur, lundin krydduð með salti og pipar og steikt í 2mínútur á hvorri hlið (verður medium rear), látin standa í nokkrar mínútur áður en borin fram.
Bökunarkartöflu pakkað í álpappír og bökuð í ofni þar til tilbúin.
Grænmeti að smekk hvers og eins valið, t.d. smjörbaunir, paprika og sveppir steikt í smjöri kryddað örlítið með salti og pipar.
Bernaise sósa,
Hráefni: smjör, eggjarauður, þurrkað estragon, steinselja, sítrónusafi, hvítvínsedik, dijon sinnep, salt og pipar.
Bræðið 400gr smjör í potti, 4 setjið eggjarauður í skál og velgið þær í smástund yfir heitu smjörinu og pískið á meðan. Setjið hálfa teskeið af dijon sinnepi út í eggjarauðuna, setjum ca tvær matskeiðar af hvítvínsediki og hálfum teningi af nautakrafti saman við. Hellum nú volgu smjörinu saman við og pískum saman jafnóðum. Setjum þurrkað estragon út í, smá sítrónusafa (c.a. 1msk) og ferska steinselju. Kryddum með salti og pipar.
Verði ykkur að góðu.
Fritz Már og Raggi Ómars
***
Hamborgarar að hætti Balthazar – Maturinn & lífið
Hreindýrahamborgari með camembert og rauðlaukssultu:
fyrir 4 persónur.
400 g hreindýrahakk, 100g nautahakk, salt og pipar
Blandað saman og mótaðir 4 hamborgarar, steikt á grilli eða pönnu.
Rauðlauksulta:
-100 g rauðlaukur, -1 dl balsamicoedik, -3 msk sykur, -1/2 dl rauðvín, -1 msk rifsberjasulta.
Allt blandað saman og soðið þar til að laukurinn er orðin vel súr-sætur.
Að lokum er camembertinn skorinn í sneiðar og settur ofan á hamborgarann ásamt lauksultunni og meðlæti eftir óskum. Borgararnir með tilheyrandi eru settir í hamborgarabrauð sem hefur verið hitað á pönunni eða grillinu.
***
Salsaborgari Balthazars:
fyrir 4persónur.
-600 g nautahakk, -1/2 laukur, -1/2 paprika, -hamborgarakrydd, -salt og pipar.
Allt blandað vel saman og mótaðir 4 hamborgarar, grillað eða steikt á pönnu. Notið síðan það sem hverjum og einum finnst gott á hamborgara í þessu tilfelli er Mexíkóskur þemi notaður: Salsasósa, ostasósa, kál og annað grænmeti...
Gott er að hafa Mexíkanskar flögur með borgurunum.
Frontera Cabernet Sauvignon frá Chile er vínið sem við mælum með ef þú vilt fá þér rautt með hammaranum, síðan er líka gott að fá sér kaldan bjór eða bara íslenskt eðalvatn úr krananum.
Steikt beikja undir stökku brauði (sjáið myndband með Ragga Ómars á http://mbl.is/mm/folk/uppskriftir/index.html?sub=view_recipe;rec_id=1058 )
Skemmtileg útfærsla á steiktum fisk þar sem brauðið verður stökkt með mjúkum fisk undir.
Aðferð
Skerið skorpu af brauðsneiðum og rúllið yfir það með kökukefli þar til að brauðið verður eins þunnt og hægt er.
Skerið bleikjuna niður í bita og penslið með eggjarauðunni og kryddið með salti og pipar, steikið í olíunni á heitri pönnu á brauðhliðinni fyrst.
Í sósuna er öllu blandað vel saman og smakkað til með salti og pipar. Borið fram með góðu salati.
Hráefni
- 800g Bleikjuflök (roð og beinlaus)
- 4 stk brauðsneiðar
- 2 stk eggjarauða
- 3msk apíkósusulta
- 3msk soyasósa
- 1 tsk chilisósa(eða fínt saxaður chili)
- 1 tsk hvítlaukur (fínt saxað)
- 1 tsk sesamolía
- 1 msk kóríander (fínt saxað)
- 1/2 lime limesafi
