Heimspekin

Balthazar bak við tjöldin

 Í verkum Williams Shakespeare er eitt nafn sem kemur oftar upp en flest og það er Balthazar.

Til dæmis er Balthazar nafnið á einkaþjóni Rómeós og einnig á einkaþjóni Portiu í Kaupmanninum frá Feneyjum.

Balthazar nafnið notar Shakespear á fleiri þjóna og einnig á aukapersónur sem bjarga einu og öðru smálegu en eru engu að síður mikilvægir þættir í gangverki leikritanna.

Það er því við hæfi að nota nafn þetta á stað þar sem vinnur fjöldi aukaleikara sem leggja líf og sál  í að skemmta þér og þjóna af alúð og natni.

Aðalhlutverkið er í þínum höndum. Balthazar vill vera þér ómissandi en jafnframt nærri ósýnilegur.

Við leggjum því mikla áherslu á að aðstoða þig við að njóta stundarinnar með okkur í anda Balthazar, bæði í mat, drykk og nærveru.

 Maturinn á Balthazar er fyrst og síðast léttur matur, svokallaður ,,Bistro'' matur, en þú finnur hjá okkur alvörusteikur og úrvalshumar á seðlinum. Við notum eingöngu fyrsta flokks hráefni og því er engin ástæða til að láta lágt verð blekkja sig. Á Balthazar færðu það sem þú kaupir eins vel framsett og matreitt og okkur er kostur. 

Njóttu með okkur og fáðu aðeins það besta á Balthazar!