Veislusalir

Balthazar er veitingastaður í hjarta borgarinnar í einu af elstu húsum miðbæjarins þar sem hefur verið starfsemi frá 1910. Góð tenging Balthazars við Ingólfstorg þar sem viðburðir eins og tónleikar og aðrar uppákomur eiga sér stað á sviði er mikilvæg fyrir staðinn. Hér í kvosinni er upphaf ferðamennskunnar í Reykjavík og er óhætt að segja að miðborgin iði af ferðamönnum yfir sumartímann.
Annar af tveimur veislusölum Balthazars á efri hæð hússins gengur undir nafninu Kaaber herbergið af virðingaskyni við Johnson og Kaaber sem lengi ráku starfsemi í húsinu á fyrri hluta síðustu aldar.Hinn salurinn á efri hæðinni er jafnframt útbúnn fullkomnum búnaði til hvers kyns fundarhalda og gleðskapar. Árum saman hefur nú verið rekinn veitingastaður í þessu fornfræga glæsilega húsi.
Aðeins það besta á Balthazar!
